FORSÍÐA
HVAÐ ER HÆGT AÐ MEÐHÖNDLA
MEÐFERÐIR OG TÆKI
SPURT OG SVARAÐ
UM OKKUR
Andlitsroði
 

MEDFERÐIR Í BOÐI

Myndir og ítarefni

Andlitsroði 1

Andlitsroði

Andlitsroði

Andlitsroði

Bæklingur

Bæklingur um meðferina

Jón Hjaltín ólafsson húðsjúkdómlæknir segir frá meðferðinni

Andlitsroði og sólarskemmdir

Hvernig vinnur meðferðin?
LUX G meðferðartækið hefur fyrst og fremst áhrif á grunnar æðar, roða og brúna bletti í húðinni. Tekið hentar því vel til þess að meðhöndla roða í andliti, t.d. vegna rósroða,grunnar æðar, en einnig má með höndla ljósbrúna bletti,s.k. sólarbletti. Slíka bletti skal greina fyrst af húðlækni.

Tækið sendir geisla af ákveðinni bylgjulengd inn í húðina. Eiginleikar geislans eru þannig að orka geislans losnar í grunnu óeðlilegu æðunum og laskar æðarnará þann hátt að þær dofna og hverfa á 2-3 vikum.

Hver er munurinn á ljósgeisla-tækjum og lasertækjum?
Þetta eru mjög svipuð tæki. Á Laserdeild Húðlæknastöðvarinnar eru notuð bæði laser og ljósgeislatæki. Í flestum tilvikum er meðferðarsvæði ljósgeislatækjanna stærra en lasertækjanna og því hægt að meðhöndla stór svæði á skömmum tíma .

Hvaða svæði er hægt að meðhöndla?
Flest húðsvæði nema í kringum augun. Andlitið,er lang algengasta svæðið sem er meðhöndlað.

Hvernig er meðferðin? Er hún sáraukafull eða hættuleg?
Húðlæknirinn þinn ákveður hvaða styrkur og stillingar henta best fyrir þína húðgerð. Meðferðarhausinn er lagður á húðsvæðið sem á að meðhöndla og hleypt af. Þú munt sjá ljósglampa og heyra píp. Einnig muntu finna fyrir skammvinnri hitatilfinningu þegar skotið ríður af.

Hverju má ég búast við eftir meðferðina?
Strax eftir meðferina má búast við einkennumsvipað og eftir vægan sólbruna. Einstakafylgir vægur bjúgur. Þessi einkenni ganga fljótt yfir og eru venjulega horfin á 2-4 klst. Ef þurfa þykir má bera kalt aloa vera gel á húðina á meðan.

Sólarskemmdir/sólarblettirBlettirnir dökknafyrst eftir meðferðina, en byrja síðan að dofnaeftir 1-2 vikur.
Rósroði
Yfrleitt byrjar roðinn eð minnka viku eftir meðferina. Batinn heldur áfram í 1-2 vikur.
Einstakar æðar og æðaslit
Æðarnar geta horfið straxeftir meðferðina, þær geta einnig dökknað fyrst, enalgengast er að þær dofni eða hverfi á 10-14 dögum.

Í flestum tilvikum þarf að meðhöndla í nokkur skipti til að ná góðum árangri.

 

 


 
server monitoring Húðlæknastöðin - Smáratorgi 1 - 201 Kópavogi - Sími 520 4444 - Fax 520 4400