FORSÍÐA
HVAÐ ER HÆGT AÐ MEÐHÖNDLA
MEÐFERÐIR OG TÆKI
SPURT OG SVARAÐ
UM OKKUR
Hárvöxtur
 

EINKENNI

Myndir

Hár á handlegg
Hárvöxtur á handlegg hjá 33 ára gamalli konu

Handleggur eftir laser
Sami handleggur eftir 4 lasermeðferðir

 

Óæskilegur hárvöxtur

Óæskilegur hárvöxtur er algengt vandamál. Áberandi hárvöxtur í andliti kvenna getur haft mikil áhrif á félagslíf þeirra og einnig haft áhrif á samskipti milli kynja.

Engin ákveðin skilgreining er til á því hvað telst mikill hárvöxtur í andliti kvenna og getur það verið háð uppruna og búsetu. Óæskilegur hárvöxtur getur einnig verið víðar á líkama kvenna svo sem á kvið, bringu, brjóstum, fótleggjum nárum og víðar. Hjá konum getur aukinn hárvöxtur á þessum stöðum verið merki um óeðlilega hormónastarfsemi en getur einnig verið ættgengur eða jafnvel tengdur notkun vissra lyfja.

Sumir karlmenn hafa mikinn hárvöxt á bol og þá sérstaklega baki. Fyrir utan að vera til óþæginda getur óvenju mikill hárvöxtur á baki karla verið félagslega hamlandi.

Nánari upplýsingar um lasermeðferð má finna annars staðar á síðunni.

 


 
server monitoring Húðlæknastöðin - Smáratorgi 1 - 201 Kópavogi - Sími 520 4444 - Fax 520 4400