Er hægt að fjarlægja ljós hár með laser?



Svar: Það eru margir þættir sem segja til um hvaða árangri megi búast við af lasermeðferð gegn óæskilegum hárvexti. Þar ræður miklu húðgerðin og háraliturinn. Einnig skiptir miklu máli reynsla og þekking þess sem framkvæmir meðferðina. Í flestum tilvikum ætti ekki að framkvæma lasermeðferð hjá þeim þar sem horfur á árangri eru slæmar eða mjög slæmar, sbr. töfluna hér að neðan. Í sumum tilvikum má þó ná nokkrum árangri hjá einstaklingum með ljóst hár, en oft er sá árangur ekki nema 40% af því sem þeir ná sem hafa góðar horfur. Í slíkum tilvikum er þó þörf á mun fleiri meðferðum, oft fleiri en 10 meðferðarskiptum. Einnig skiptir máli hvaða lasertæki eru notuð og er þá stundum kostur að hafa yfir fleiri en einni tegund lasertækja að ráða og eru þá erfiðustu sjúklingarnir meðhöndlaðir með mismunandi tækjum. Sjá annars töfluna hér að neðan.
tbl1_small


Með tilkomu nýrra tækja hafa horfur þeirra sem hafa mjög dökka húð batnar. Sama á við um einstaklinga sem hafa mjög ljós hár. Fyrir nokkrum árum var öllum einstaklingum með ljós hár ráðlagt að reyna ekki háreyðingu. Í dag höfum við yfir betri tækjum að ráða þannig að meðferð á ljósum hárum tekst stundum þokkalega. Almennt gildir þó að í slíkum tilvikum þarf að meðhöndla mun oftar en þegar um dökk hár er að ræða.

Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir
Húðlæknastöðin, Laserdeild- Smáratorg 1, 201 Kópavogur - sími: +354 5204444 - fax:+354 5204400 Hafðu samband