Hvaða sjúkdómur er melasma?

Stundum byrjar þessi sjúkdómur þegar konur eru þungaðar og getur gengið yfir eftir fæðingu, þó oft sé því ekki þannig háttað. Endurteknar þunganir gera sjúkdómnum ekki gott. Einkenni koma fyrst og fremst fram yfir sumarmánuðina, en mildast mjög yfir vetrarmánuðina. Þegar sjúkdómurinn er langt genginn, þá hætta einkennin að ganga til baka yfir vetrarmánuðina.

mel-1 mel-2

Orsakir
Melasma er getur birst sem aukaverkun við pilluna og í slíkum tilvikum er erfitt að fá einkenni til að ganga til baka nema að hætta gjöf getnaðarvarnarpillunnar. Melasma getur einnig komið fram hjá konum sem ekki eru þungaðar eða á pillunni og er þá talið að um meinlaust ójafnvægi á milli hormóna sé að ræða.

Sólin, notkun ilmefna, t.d. í ilmandi sápum eða kremum hefur tilhneigingu til að gera sjúkdóminn verri. Hér er um að ræða upptöku á sólargeislunum af ilmefnunum. Einkennin eru stundum verri vinstra megin í andlitinu, en það stafar af því að hluti sólargeislanna kemst í gegnum rúðu og hjá þeim sem keyra mikið bíl er þetta stundum áberandi

Meðferð
Ef þig grunar að þú hafir melasma skaltu leita til húðlæknis. Meðferðin kanna að vera fólgin í einhverju af eftirfarandi. Flest þessara efna er einungis hægt að fá á lyfseðli.
Ef þú ert á pillunni er oftast nauðsynlegt að hætta pillugjöf. Það getur tekið 6-12 mánuði þar til áhrifin af því koma í ljós.
Sólvörn er mjög mikilvæg. Þú þarft að nota sólvörn sem er með sólvarnarstuðul 25 eða meira. Mikilvægt er að vörnin blokki bæði UVA og UVB geisla. Sólvörn þarf að nota alla daga, líka þá daga sem sólin ekki skín.

  • Forðist ertandi efni og ilmefni í andlitið.
  • Krem sem lýsa húðina. Mörg slík krem innihalda hýdrókínón. Slík krem þarf að minnta í minnst 6 mánuði áður en áhrif koma fram. Athugið að hluti úr degi án sólvarnar getur skemmt margra mánaða meðferð með lýsandi kremum. Berið fyrst lýsandi kremið á húðina og síðan sólvörn.
  • Glýkólsýra. Krem sem innihalda glýkólsýru eru oft notuð með öðrum kremum.
  • Tretinoin krem. Töluvert notað. Þetta krem hefur einnig jákvæð áhrif á hrukkur. Getur valdið ertingu í byrjun. Þungaðar konur eiga ekki að nota þetta krem.
  • Azelaicsýra. Þetta efni hemur nýmyndun litarefnis og er einnig virkt gegn bólum. Eins og með önnur krem sem virka á melasama líða oft margir mánuðir þar til að áhrif koma fram.
  • Endurtekin peel meðferð (með glýkólsýru eða Jessners lausn). Húðlækninn framkvæmir þessi peel á stofunni. Þau kunna að hafa jákvæð áhrif á hrukkur einnig.
  • Laser meðferð. Í sumum tilvikum kann húðlæknirinn að ráðleggja lasermeðferð. Þá er notuð meðferð með fractional laser. Um þá meðferð má lesa annars staðar á síðunni.
Húðlæknastöðin, Laserdeild- Smáratorg 1, 201 Kópavogur - sími: +354 5204444 - fax:+354 5204400 Hafðu samband